
Guðbjörg Hannesdóttir Mynd VÍÆ III

,,Við þakkir með kærleika kransinn þinn bjarta Hér hvílir þitt útbrædda móður hjarta“ . Úr fjölskyldugrafreitnum í Alberta Mynd JÞ
Guðbjörg Hannesdóttir fæddist 8. júlí, 1830 í Skagafjarðarsýslu. Dáin í Markerville í Alberta 18. janúar, 1911.
Maki: 31. október, 1850 Guðmundur Stefánsson f. 15. apríl, 1818 í Eyjafjarðarsýslu, d. í Garðarbyggð 24. nóvember, 1881.
Börn: 1. Stefán f. 3. október, 1853, d. 9. ágúst, 1927 2. Sigurlaug Einara f. 19. nóvember, 1860.
Þau fluttu vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873 og dvöldu í Danesýslu fáein ár. Fluttu í Shawanobyggðina haustið 1874 þar sem þau bjuggu til ársins 1880. Þá fluttu þau vestur í Garðarbyggð í N. Dakota. Guðbjörg flutti seinna vestur til Alberta með syni sínum, Stephani G.
