Guðfinna Ögmundsdóttir

ID: 18954
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1951

Guðfinna Ögmundsdóttir fæddist 29. maí, 1873 í Húnavatnssýslu. Dáin 4. ágúst, 1951 í Winnipeg, Manitoba.

Maki: 1906 Guðmundur Jónsson f. 8.maí, 1882 í S. Múlasýslu, d. 11. mars, 1959. Tók nafnið Austfjord vestra

Börn: 1. Jósefína Kristín (Chrissie) f. 19. nóvember, 1906 2. Margrét f. 1908 3. Ögmundur Sigurður (Siggi) f. 17. mars, 1917, dáinn 8. apríl, 2003 4. Jón Ásgeir f. 1915, dáinn 7. september, 1934.

Guðfinna flutti vestur til Kanada árið 1903. Guðmundur fór vestur sama ár með móður sinni, Guðrúnu Björgu Guðmundsdóttur og Margréti Sigurjónsdóttur, átta ára dóttur Sigurjóns Jónssonar, bróður Guðmundar. Þau fóru í Akrabyggð í N.Dakota fyrsta árið en fluttu 1904 til Nýja Íslands og bjuggu um hríð í Hnausabyggð. Þaðan lá leiðin á Grund í Geysirbyggð, bjuggu í Arborg til 1914 en þá fluttu þau út í Mikley (Hecla) eftir nokkur ár.  Fluttu þau til Selkirk 1918 en enduðu á Skógum í Mikley (Hecla) árið 1927.