Guðfinna Tómasdóttir

ID: 1342
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : Árnessýsla

Guðfinna Tómasdóttir fæddist 21. ágúst, 1861 í Árnessýslu.

Maki: Jón Þórðarson f. á Akranesi í Borgarfjarðarsýslu 25. nóvember, 1863.

Börn: 1. Tómas Ingimar 2. Albert Þórður 3. Guðmundur Frímann 4. Guðjón 5. Gústaf Adolf 6. Bjarni 7. Gordon 8. Guðrún Victoria 9. Guðjón Ágúst.

Guðfinna fór vestur til Kanada árið 1886 með foreldrum sínum, Tómasi Ingimundarsyni og Guðrúnu Eyjólfsdóttur. Jón fór vestur um haf árið 1886 til Winnipeg í Manitoba og eftir skamma dvöl þar hélt hann áfram vestur og settist að í Þingvallabyggð í Saskatchewan. Þar kvæntist hann Guðfinnu Tómasdóttur. Jón og Guðfinna hófu búskap í Þingvallabyggð og bjuggu þar í fimm ár. Þau fluttu á Big Point 1894. Jón var stórbóndi í héraðinu. Hann nam land og keypti síðan meira. Stundaði bæði akuryrkju og nautgriparækt í stórum stíl. Hann byggði mikið, vandað íbúðarhús með öllum þægindum eins og miðstöðvarhitun og rafmagni.

Jón var einn af máttarstólpum byggðarinnar. Reyndist afar drjúgur og örlátur þegar kom að samfélagsmálum.