Guðjón Jónsson

ID: 11789
Fæðingarár : 1847
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1931

Guðjón Jónsson Vopni Mynd VÍÆ IV

Guðríður Sigurðardóttir Mynd VÍÆ IV

Guðjón Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 26. september, 1847. Dáinn 1931 í Saskatchewan.  Skráður Vopni vestra.

Maki: 16. júní, 1880 Guðríður Sigurðardóttir f. í N. Múlasýslu 20. júlí,  1849, d. 10. nóvember, 1931

Börn: 1. Sveinn f. 6. febrúar, 1881, d. 11. mars, 1952 2. Sigurður f. 15. júlí, 1883, d. 1. maí, 1956 3. Jón Björgvin f. 28. nóvember, 1885, d. 26. ágúst, 1966 4. Hannes f. 29. september, 1887, d. 1889 5. Þórunn Björg f. 7. nóvember, 1890 6. Jósefína Málmfríður f. 1893.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889. Settust að í Argylebyggð ári seinna og þaðan vestur og námu land í Vallarbyggð vestan við Manitoba árið 1900. Námu land í Vatnabyggð í Saskatchewan og fluttu á það árið 1910. Það var í Kandahar/Dafoe byggð.