ID: 17070
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1896

Guðjón Erlendur og Guðrún Jökulrós Mynd VÍÆ I
Guðjón Erlendur Magnússon fæddist á Víðivöllum í Nýja Íslandi 17. september, 1896.
Maki: 17. október, 1919 Guðrún Jökulrós Ágústsdóttir f. 12. júlí, 1893 í Húsavíkurbyggð í Nýja Íslandi.
Börn: 1. Gerður Hansína f. 25. ágúst, 1920 2. Emma Magnúsína f. 6. maí, 1922 3. Óli Óskar Jóhannes f. 29. ágúst, 1925 4. Sigurlína Ágústa f. 7. febrúar, 1928 5. Alda Ingibjörg f. 6. apríl, 1932 6. Ólöf Anna f. 8. júlí, 1935.
Guðjón var sonur Magnúsar Narfasonar og Emerentínu Jónsdóttur er vestur fluttu árið 1886 og settust að í Nýja Íslandi. Guðjón ólst upp á Víðivöllum og var þar bóndi. Guðrún var dóttir Ágústs Eiríkssonar Ísfeld í Húsavík í Nýja Íslandi.
