Guðjón S Friðriksson

ID: 4581
Fæðingarár : 1867
Dánarár : 1954

Guðjón Sólberg Friðriksson fæddist 4. nóvember, 1867 í Ísafjarðarsýslu. Dáinn 23. janúar, 1954 í Manitoba.

Maki: 1) Regína Sigríður Indriðadóttir f. í Húnavatnssýslu árið 1857, d. 11. október, 1913 í Selkirk 2) Nikolína Jónsdóttir f. í Skagafjarðarsýslu 29. júlí, 1868, d. í Manitoba 10. nóvember, 1959.

Guðjón flutti til Vesturheims árið 1896 og fór til Manitoba. Árið 1913 settist hann að í Selkirk og bjó þar eftir það.  Regína flutti vestur árið 1889 með Rósu systur sinni. Nikólína fór vestur frá Akureyri árið 1913.