Guðjón V Árnason

ID: 16334
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1891
Dánarár : 1984

Guðjón V Árnason Mynd VÍÆ I

Guðjón Valdimar Jóhannsson fæddist á Espihóli í Nýja Íslandi 25. febrúar, 1891. Dáinn í Manitoba 4. janúar, 1984. Árnason (Arnason) vestra.

Maki: Petrína (Petra) Þórunn Soffía Baldvinsdóttir f. á Gimli í Nýja Íslandi 10. mars, 1896.

Börn: 1. Baldvin Elis f. 2. mars, 1914 2. Jóhann Wilhelm f. 18. júní, 1915 3. Magnús Valdimar f. 30. apríl, 1917 4. Kristján Theodór f. 25. júní, 1918 5. Lára Aðalheiður f. 9. júní, 1920 6. Franklín Mariní f. 14. september, 1922 7. Bernive Lillian f. 5. desember, 1925 8. Margrét Aðalbjörg f. 20. desember, 1928 9. Charles Friðrik Pétur f. 19. júlí, 1931 10. Wilfred Leonard f. 1. mars, 1934.

Guðjón var sonur Jóhanns Péturs Árnasonar og Dórótheu Soffíu Abrahamsdóttur, landnema á Espihóli í Víðinesbyggð í Nýja Íslandi.  Foreldrar Petrínu voru Baldvin Árnason (Capt. Baldvin Anderson) og Guðrún Jónsdóttir. Guðjón tók við búskapnum á Espihóli að föður sínum látnum og stórefldi hann. Rak um skeið mikið mjólkurbú og stundaði fiskveiðar í Winnipegvatni.