Guðlaug Árnadóttir fæddist 20. september, 1874 í Gullbringusýslu. Dáin í N. Múlasýslu 28. maí, 1949.
Unnusti : Hallgrímur Eyjólfsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1873. Dáinn í N. Múlasýslu í ágúst, 1910.
Börn: Með Hallgrími: 1. Ingólfur f. 1902 2. Oddný f. 1904 3. Albert f. 8. júní, 1906. Með Kristni Björnssyni 1. Sigfús Kristinsson f. 1914.
Hallgrímur og Guðlaug sigldu vestur til Winnipeg í Manitoba með börn sín tvö árið 1904. Ingibjörg Bjarnadóttir, móðir Hallgríms fór með þeim en fyrir í Kanada var annar sonur hennar, Sigurður, sem fór vestur árið 1888. Hallgrímur veiktist af berklum í Winnipeg þar sem þau settu börn sín í fóstur og sigldu heim til Íslands. Vegna veikinda Hallgríms og misskilnings yfirvalda í Reykjavík fengu þau ekki landvistarleyfi og neyddust til að sigla aftur yfir Atlantshafið og með sama skipi til baka. Í þessum siglingum varð Guðlaug léttari, fæddi tvíbura og lifði annar. Þau fluttu austur í gamla hreppinn sinn en fengu ekki að vera undir sama þaki, Guðlaug var á Refstað með Albert litla en það leið að endalokum Hallgríms. Guðrún ól son árið 1914 og var faðirinn Kristinn Björnsson, vinnumaður á sama bæ. Sá dó fáeinum mánuðum síðar. Guðlaug átti ekki afturkvæmt til Vesturheims.
