Guðlaug Benediktsdóttir

ID: 8666
Fæðingarár : 1834
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1909

Guðlaug Benediktsdóttir fæddist árið 1834 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin í Idaho 20. febrúar, 1909.

Maki: Jakob Sigurðsson f. í Eyjafjarðarsýslu 16. febrúar, 1827, d. í N. Dakota 20. janúar, 1921. Eyfjörð (Eyford) vestra.

Börn: 1. Hanna f. 1862 2. Bogi f. 1863 3. Jakobína f. 1865 4. Júlíus f. 1866 5. Sigurlína f. 1867. Jakob eignaðist son, Kristján f. 1871.

Þau fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1873 og fóru til Parry Sound.  Þaðan lá leiðin árið 1875 til Nýja Íslands þar sem þau bjuggu til ársins 1878. Þá fluttu þau til Winnipeg og bjuggu þar til vors, 1881 en nam þá land suður af Mountain í N. Dakota. Byggðin sem þar myndaðist, Eyfordbyggð var kennd við Jakob Eyfjörð.