Guðleif Árnadóttir

ID: 13968
Fæðingarár : 1865
Dánarár : 1951

Guðleif Árnadóttir fæddist 24.október árið 1865 í Mjóafirði í N. Múlasýslu. Dáin 14.mars, 1951.

Maki: 1891 Jón Jónsson f. á Setbergi í Hornafirði í  A. Skaftafellssveit 30. maí, árið 1864, d. 1. apríl, 1928. Tók nafnið Hornfjörð vestra.

Börn: 1. Bergþór f. 1892. Dáinn 1894.  2. Bergþóra (Begga Pell) f.16.maí, 1894. Dáin 3.mars, 1940 3. Kristrún (Rúna) Guðmundína f. 3. apríl, 1896. Dáin 15. ágúst, 1927 4. Helgi f. 3.júlí, 1897

5. Sesselja f.12. febrúar, 1900 6. Þorsteinn f. 9. september, 1907, d. 14. ágúst, 1924. Ólu upp fósturson Emil Sigurðsson f. 2. september, 1892.

Fluttu vestur til Manitoba 1890. Settust að í Ísafoldarbyggð og bjuggu þar í 10 ár. Fluttu á land sitt í Framnesbyggð 1901 og bjuggu þar í 20 ár. Fluttu vestur til Leslie, Saskatchewan árið 1922.