ID: 10600
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1910
Guðleif Stefánsdóttir fæddist 28. júlí, 1862 í N. Þingeyjarsýslu. Dáin 29. október, 1910 í Vallarbyggð í Saskatchewan. Einarson vestra.
Maki: Benjamín Einarsson f. 1. maí, 1864, d. 31. ágúst, 1904 í Manitoba.
Börn: 1. Líneik f. 25. september, 1892 2. Höskuldur 3. Bismarck 4. Laufey 5. Parmis.
Guðleif fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 en Benjamín kom þangað ári síðar. Þau bjuggu fyrst í N. Dakota en þaðan lá leið þeirra í Grunnavatnsbyggð í Manitoba. Guðleif var ekkja orðin, fimm barna móðir, þegar hún flutti vestur í Geraldbyggð í Saskatchewan og á landi Þorsteins Gíslasonar var reist hús handa henni og þar bjó hún.
