Guðmundína Jóhannsdóttir

ID: 7010
Fæðingarár : 1871

Guðmundína Jóhannsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1871.

Maki: Ingjaldur Kristófer Ingjaldsson fæddist í Húnavatnssýslu árið 1874. Dáinn í Ontario  28. maí, 1948. Christopher Ingjaldsson vestra.

Börn: upplýsingar vantar.

Guðmundína fór til Winnipeg árið 1887 með móður sinni, ekkjunni Helgu Pálsdóttur. Ingjaldur fór til Vesturheims árið 1888, með móður sinni, Þóru Kristófersdóttur og systkinum. Faðir hans, Ingjaldur fór vestur árið áður og beið fjölskyldunnar í Winnipeg. Þar lærði Kristófer gull-og úrsmíði, settist að í Selkirk en sneri aftur til Winnipeg árið 1891.