Guðmundur Arngrímsson

ID: 11590
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : A. Skaftafellssýsla
Dánarár : 1950

Guðmundur Arngrímsson fæddist í A. Skaftafellssýslu 19. nóvember, 1861. Dáinn 23. apríl, 1950 í Selkirk. Anderson vestra.

Maki: 11. október, 1890 Jóhanna Jónsdóttir f. í A. Skaftafellssýslu 7. júní, 1866, d. 21. maí, 1953.

Börn: 1. Jón (John Anderson) f. 6. september, 1891 2. Hermann (Harry Anderson) f. 25. ágúst, 1892 3. Þorgerður f. 3. apríl, 1894 4. Katrín Sigríður f. 1. apríl, 1897, d. á Íslandi 5. Gunnar Hallgrímur f. (Charlie Anderson) f. 23. október, 1898 6. Katrín Sigríður Steinunn 15. september, 1903 í Selkirk. 7. Jóhanna d. þriggja ára.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1900 og settust að í Ísafoldarbyggð meðal ættingja og vina. Flóð í Winnipegvatni árið 1903 krakti þau brott og fóru þau til Selkirk. Seinna fékk Guðmundur vinnu í Lac du Bonnet austur af Selkirk þar sem hann nam land og hóf búskap. Þau bjuggu þar til ársins 1940 en þá fluttu þau aftur til Selkirk.