ID: 6829
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1837
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1877
Guðmundur Guðmundsson fæddist árið 1837 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Nýja Íslandi skömmu eftir komuna til Nýja Íslands 1876.
Maki: Ása Eymundsdóttir d. á Íslandi eftir 1870.
Börn: 1. Þóra f. 1866 2. Jóna Sigríður f. 1868 3. Þórarinn f. 1870. Tvö dóu í æsku.
Guðmundur fór vestur árið 1876 með börn sín þrjú. Hann flutti til Nýja Íslands en ekki lifði hann þar lengi, dó skömmu eftir komuna þangað. Börnin voru tekin í fóstur. Stúlkurnar uxu úr grasi í Manitoba og árið 1912 voru þær báðar giftar kanadíksum mönnum og bjuggu í Winnipeg. Þórarinn var tekinn í fóstur af Sveinbirni Jóhannessyni og konu hans.
