
Guðmundur Guðmundsson og Guðbjörg Þorsteinsdóttir Mynd Brot
Guðmundur Guðmundsson fæddist 1. október, 1847 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Manitoba 2. mars, 1935. Norðman eða Nordman vestra.
Maki: 1) 1877 Guðrún Kristjánsdóttir f. í Húnavatnssýslu árið 1853, d. 18. apríl, 1887 2) 1887 Guðbjörg Þorsteinsdóttir f. 10. júlí, 1854 í N.Múlasýslu, d. 21. mars, 1943
Börn: Með Guðrúnu: 1. Guðmundur Kristján f. 1880 2. Guðný Ingibjörg f. 1883 3. Kristján f. 1885 4. Konráð (Conrad) f. 1886. Guðrún átti fyrir Sigurbjörgu Soffíu Ólafsdóttur f. 1874. Guðmundur átti fyrir Halldóru f. 14. júní, 1874. Hún flutti vestur árið 1902.
Guðmundur flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og fór til Kinmount. Þaðan lá leið hans austur í Nova Scotia ári síðar en 1876 flutti hann vestur til Nýja Íslands. Þar nam hann land í Fljótsbyggð en bjó þar stutt og fór í Víðinesbyggð suður af Gimli. Þaðan lá svo leið hans í Argylebyggð þar sen hann settist að á landi vestur af þar sem bærinn Cypress River stendur í dag.
