ID: 2266
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : Borgarfjarðarsýsla
Guðmundur Guðmundsson fæddist í Borgarfjarðarsýslu árið 1866. Goodman vestra.
Maki: Pálína Pálsdóttir f. í Skagafjarðarsýslu árið 1864.
Börn: 1. George Victor f. 1896 2. Mae Elísabet 3. Sigrún f.1907.
Guðmundur flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með móður sinni og systrum árið 1885 og áfram í Garðarbyggð í N. Dakota. Þar bjó þá móðurbróðir hennar Steinólfur Grímsson. Guðmundur bjó fáein ár í Milton áður en hann flutti í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1904 og nam land í Wynyardbyggð.
