Guðmundur Helgason

ID: 3259
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : Mýrasýsla
Dánarár : 1929

Guðmundur Helgason fæddist 4. september, 1870 í Mýrasýslu. Dáinn í Mouse River byggð 19. ágúst, 1929. Goodman vestra.

Maki: Anna Jónsdóttir f. 25. júlí, 1874 í Skagafjarðarsýslu, d. í N. Dakota 9. janúar, 1952.

Börn: 1. Walter f. 21. ágúst, 1892 2. Helgi Stefán f. 25. ágúst, 1894 3. Alexander Sveinn f. 27. febrúar, 1897 4. Mabel Ellenbjorg (Elínbjörg?) f. 3. ágúst, 1901 5. Ásgerður Guðný f. 2. september, 1903, d. 6. júní, 1926 6. Jóna f. c1905 7. Barði f. 10. júní, 1911 8. Ingibjörg (Emma) Lovísa f. 1. mars, 1914 d. 20. janúar, 1939 9. Kristinn (Christopher) William f. 6. apríl, 1916 10. Ólafur f. 1918

Guðmundur flutti vestur til N. Dakota árið 1881 með foreldrum sínum, Helga Guðmundssyni og Helgu Eyvindsdóttur. Þau bjuggu fyrst í Pembina sýslu en fluttu 1886 vestur í Mouse River byggð. Anna flutti vestur til N. Dakota árið 1883 með foreldrum sínum, Jóni Filippussyni og Ólöfu Ásgrímsdóttur úr Skagafirði. Þau voru frumbyggjar í Mouse River byggð. Guðmundur og Anna hófu búskap í Mouse River en bjuggu seinna í Elm Grove hreppi í McHenry sýslu.