Guðmundur Jónsson

ID: 10048
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Guðmundur Jónsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 9. ágúst, 1854. Dáinn í Winnipeg 19. júní, 1925.

Maki: Katrín Arngrímsdóttir f. í N. Múlasýslu árið 1865.

Börn: Upplýsingar vantar

Guðmundur fór vestur til Kinmount í Ontario árið 1874 með systur sinni Sigríði. Þau fluttu saman til Winnipeg og bjuggu þar. Guðmundur stundaði verslun og seldi fatnað í verslun sinni á horninu á Ross og Isabel götum. Á hæðinni fyrir ofan verslunina var heilmikill salur, North West Hall, þar sem Íslendingar í borginni héldu margs konar mannfagnaði.