ID: 12122
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1920
Guðmundur Jónsson fæddist 4. maí, 1855 á Refsstað í N. Múlasýslu. Dáinn 11. september, 1920 í Minneapolis. Tók föðurnafnið Rafnson vestra.
Maki: 1) Jósefína Sigurðardóttir f. 1853, d. 3. desember, 1891 2) Aðalbjörg Ásbjörnsdóttir f. c1864.
Börn; Með Jósefínu 1. Sigurjón f. 26. júlí, 1885 2. Þórunn Ingibjörg f. 30. nóvember í Marshall. Með Aðalbjörgu 1. Franklin T. f. 14. mars, 1895 2. Marvin Sigurður f. í október, 1898, d. 16. desember, 1898 3. Marvin William f. 1900 4. Lillian f. 1902.
Guðmundur og Jósefína fluttu vestur árið 1889 og settust að í Marshall í Minnesota. Guðmundur flutti þaðan eftir að Jósefína lést og settist að í Minneota. Mun hafa starfað þar í kjötverslun. Hann og Aðalbjörg fluttu þaðan til Minneapolis um 1920.
