Guðmundur Jónsson

ID: 12388
Fæðingarár : 1891
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1941

Guðmundur Jónsson Mynd Heimskringla 20. ágúst, 1941

Guðmundur Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 11. janúar, 1891.  Dáinn í Vogum í Manitoba 28. júlí, 1941.

Ókvæntur og barnlaus.

Guðmundur fór vestur árið 1903 með foreldrum sínum, Jóni Jónssyni frá Sleðbrjót og Guðrúnu Jónsdóttur. Þau settust að í Siglunesbyggð og var Guðmundur hjá þeim lengi. Hann settist að í Vogum í Manitoba og var smjörgerðareftirlitsmaður þar um slóðir.