ID: 15825
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Vestmannaeyjar
Dánarár : 1894
Guðmundur Magnússon fæddist í Vestmannaeyjum 18. janúar, 1863. Dáinn 1894.
Maki: Hildur Eyjólfsdóttir f. 5. febrúar, 1852, d. 24. febrúar, 1942.
Börn: Hildur átti dóttur, Sigríði Ólafsdóttur fyrir.
Guðmundur flutti einsamall til Spanish Fork í Utah árið 1888. Hildur fór vestur með Sigríði, dóttur sína til Winnipeg í Manitoba í Kanada og bjó eitthvað þar og seinna í Selkirk. Flutti þaðan til Spanish Fork og giftist Guðmundi. Þær mæðgur fluttu þaðan vestur til Blaine í Washington eftir að Guðmundur lést.
