
Fremst: Kristján og Halldór, miðja: Guðný, Guðmundur, Jónína og Lauga. Guðrún Jónatansdóttir aftast. Mynd WtW
Guðmundur Stefánsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1876. Dáinn í Lundarbyggð árið 1952. Mundi vestra.
Maki: 26. júní, 1900 Jónína Sigurbjörg Halldórsdóttir f. í Winnipeg árið 1882, d. 1942. Hún var dóttir Halldórs Jónssonar og Guðnýjar Sigmundsdóttur sem settust að í Lundarbyggð.
Börn: 1. Guðný 2. Halldór 3. Guðrún 4. Baldur 5. Lilja Geran 6. Fjóla. Þrjú börn þeirra dóu ung: 1. Kristján 6 ára 2. Kristján 9 mánaða 3. Hólmfríður 3 mánaða.
Guðmundur fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1886 með móður sinni, Guðrúnu Jónatansdóttur. Þar ólst hann upp en fór í Lundarbyggð í vinnu hjá Halldóri Jónssyni, föður Jónínu. Þau settust að í Lundarbyggð á landi nærri Vestfold.
