
Guðni Gestsson og Guðlaug Jónsdóttir og dætur þeirra. Mynd SÍND
Guðni Gestsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 2. maí árið 1862. Dáinn í N. Dakota 18. júní, 1923.
Maki: 1) Guðlaug Jónsdóttir f. í N. Þingeyjarsýslu árið 1858, d. 15. maí, 1902 í N. Dakota. 2) 15. júlí, 1904 Anna Kristjánsdóttir úr Skagafirði d. 19. janúar, 1928.
Börn: Með Guðlaugu 1. Elísabet f. í N. Dakota 20. október, 1889 2. Björg Þrúður f. 13. júlí, 1893 3. Gunnlaugur f. 2. mars, 1895 4. Magnea f. 28. desember, 1896. Með Önnu 1. Guðlaug Rut f. 4. september, 1906 2. Sigurjóna f. 13. apríl, 1906. Anna Kristjánsdóttir flutti til Mountain um 1903, ekkja með fimm börn. Þau ólust upp á heimili Guðna og móður sinnar.
Guðni flutti vestur um haf árið 1887 og settist að í Víkurbyggð í N. Dakota.
