Guðni Guðmundsson

ID: 9790
Fæðingarár : 1835
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1883

Guðni Guðmundsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1835. Dáinn í N. Dakota árið 1883.

Maki: Rósa Sigurðardóttir fæddist árið 1824, d. 13. desember, 1920.

Börn: 1. Sigurrós f. 1854, d. 1878 2. Anna Sigríður f. 12. desember, 1855, d. 25. nóvember, 1911 í N. Dakota 3. Kristín Guðný f. 10. maí, 1866, d. 1935 í Manitoba. Fimm dætur þeirra, Margrét, Helga, Nýbjörg og tvíburarnir Rósa og Guðrún dóu á Íslandi.

Þau fluttu vestur til N. Dakota árið 1882 og bjuggu hjá Önnu Sigríði og hennar fjölskyldu í litlum bjálkakofa. Þar var svo Rósa til dauðadags.