ID: 2039
Fæðingarár : 1843
Fæðingarstaður : Borgarfjarðarsýsla
Dánarár : 1935
Guðný Andrésdóttir fæddist árið 1843 í Borgarfjarðarsýslu. Dáin í Blaine, Washington árið 1935.
Maki: Jón Sveinbjarnarson fæddist að Oddsstöðum í Lundarreykjadal í Borgarfjarðarsýslu árið 1853. Dáinn árið 1938 í Blaine í Washington. Oddsted vestra.
Börn: 1. Þorkell f. 1877 2. Jón f. 1878 3. Sveinbjörn f. 1882 4. Guðjón f. 1883. Guðný átti fyrir Þorbjörgu Jónsdóttur f. 1867.
Þau fluttu til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og settust að í Nýja Íslandi. Þaðan fluttu þau ári síðar í Argylebyggð þar sem þau bjuggu í 14 ár. Fóru vestur að Kyrrahafi og settust að í Crescent í Bresku Kólumbíu. Þaðan lá svo leiðin til Blaine í Washingtonríki.
