Guðný Eiríksdóttir

ID: 10907
Fæðingarár : 1844
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1923

Jón Jónsson frá Munkaþverá Mynd VÍÆ II

Guðný Eiríksdóttir Mynd VÍÆ II

Guðný Eiríksdóttir fæddist 19. janúar, 1844 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 7. september, 1923 í Blaine í Washington.

Maki: 19. júlí, 1877  Jón Jónsson f. að Munkaþverá í Eyjafjarðarsýslu 9. október, 1852, d. 21. desember, 1945.

Börn: 1. Anna f. 7. janúar, 1879 2. Jón Frímann f. 24. október, 1884, d. 14. ágúst, 1952.

Guðný flutti vestur til Nýja Íslands árið 1876. Jón flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1875. Vann þar  í Gravenhurst einhvern tíma en hélt þaðan suður til Milwaukee. Slóst seinna um haustið í för með fyrstu landnemunum á leið til Nýja Íslands. Þar nam hann land í Víðirnesbyggð og nefndi Akur.  Flutti til Winnipeg með konu og dóttur árið 1879 og vann við húsasmíðar fyrsta veturinn. Flutti til Pembina í N. Dakota haustið 1880, nam þar land og byggði sér hús. Hann seldi það og flutti vestar í byggðina. Flutti þaðan suður til Grand Forks árið 1891 og árið 1904 í Vatnabyggð í Saskatchewan þar sem hann bjó til ársins 1910. Þá lá leiðin vestur til Vancouver þar sem hann bjó í tvö ár, færði sig suður til Blaine í Washington árið 1912 og bjó þar til ársins 1930. Heimsótti Ísland það ár, hafði reyndar farið þangað líka árið 1909.