Guðný Hallgrímsdóttir

ID: 9355
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Guðný Hallgrímsdóttir Mynd í eigu afkomenda Kristjönu Jónsdóttur frá Mýri.

Guðný Hallgrímsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1833.

Maki: Jón Rögnvaldsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1831. Dáinn 26. nóvember, 1903.

Börn: 1. Hallfríður Guðrún f. 1863 2. Steingrímur f. 1872

Þau fluttu vestur frá Mýri í Bárðardal árið 1889 til Winnipeg í Manitoba. Þaðan var svo haldið áfram í Þingvallabyggð vestur af Manitoba. Þar námu þau land og bjuggu á því. Fluttu þaðan með Steingrími, syni sínum til Kildonan norðan við Winnipeg árið 1893.