Guðný J Guðnadóttir

ID: 11943
Fæðingarár : 1885

Guðný J Guðnadóttir Mynd VÍÆ II

Guðný Jakobína Guðnadóttir fæddist í Vopnafirði, N.Múlasýslu 3. október, 1885. Nordal í hjónabandi.

Maki: 21. október, 1908 Magnús Jónsson Nordal f. í Mikley í Manitoba 1. nóvember, 1878, d. 29. júlí, 1935.

Börn: 1. Sigríður Agnes f. 17. ágúst, 1909 2. Guðrún Ingibjörg f. 1. mars, 1911 3. Jón Harald f. 21. maí, 1915 4. Helga Emily f. 26. október, 1917 5. Elmer Valdimar f. 29. mars, 1921 6. Victor Nordal f. 24. maí, 1928.

Guðný flutti vestur til Manitoba árið 1888 með foreldrum sínum, Guðna Jónssyni og Jakobínu Sigurðardóttur. Fjölskyldan settist að í Argylebyggð en þar létust báðir foreldrarnir stuttu seinna og var Guðný þá tekin í fóstur af Friðriki Jónssyni í byggðinni og hans fjölskyldu. Eftir tæp tvö ár þar er Guðný komin í fóstur til Guðnýjar Aradóttur þar sem hún var næstu tvö árin. Þá fer hún í fóstur hjá Steingrími Guðnasonar þar í byggð og er hjá honum þar til hún gekk í hjónaband.  Hún og Magnús fluttu í Brúarbyggð í Argyle árið 1908 og var Guðný þar til ársins 1941. Flutti þá til Winnipeg.