Guðný Jónsdóttir

ID: 9367
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1881
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1924

Guðný og Indriði með Helgu, dóttur Guðnýjar, Huldu f. 1911, Björn Jón f. 1912 og Harald Guðmund f. 1914. Mynd í eigu afkomenda Kristjönu Jónsdóttur frá Mýri.

Guðný Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1881. Dáin í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1924.

Maki: 1910 Indriði Guðmundsson f. í Borgarfjarðarsýslu árið 1876. Dáinn árið 1940.  Skordal vestra.

Börn: 1. Hulda f. 1911 2. Björn Jón f. 1912 3. Haraldur Guðmundur f. 1914 4. Ásgeir Halldór f. 1916 5. Kjartan f. 1917 6. Baldur f. 1918 7. Kristjana Helga f. 1919, tvíburi 8. Hallgrímur Jóhann f. 1919 9. Njáll f. 1920 10. Jón Norman f. 1922 11. Baldur Guðni f. 1924.  Guðný átti dóttur, Helgu Jónsdóttur f. 1903, með Jóni Þorvaldssyni.

Indriði fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1900.  Fór þaðan í Argyle byggð árið 1903. Nam land í Vatnabyggð og settist á það árið 1905. Það var nærri Kandahar og Dafoe. Guðný fór vestur til Winnipeg árið 1905 með dóttur sína Helgu. Áfram þaðan vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan.