Guðný Runólfsdóttir

ID: 14258
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1943

Guðný Runólfsdóttir fæddist 14.maí, 1854 í S. Múlasýslu. Dáin 17. nóvember, 1943 í Yellow Medicine sýslu í Minnesota.

Maki:  Ásgrímur Guðmundsson f. 16. apríl, 1845 í N. Múlasýslu, d. 25. október, 1931 í Yellow Medicine sýslu. Skrifaði sig Westdal í Ameríku.

Börn: 1. Lúðvík f. 20. október, 1881 2. Margrét f. 10. júlí, 1882 3. Jón Ásgrímur f. 3. febrúar, 1883 4. Frank Lárus f. 16. júlí, 1885 5. Runólfur (Rudolph) f. 10. mars, 1886 6. Guðbjörg Ólína f. 23. maí, 1889 7. Guðný Soffía f.  10. júlí, 1891 8. Kristín Ágústa f. 1895 9. Björgvin f. 25. ágúst, 1895 10. Lilja Guðrún f. 1897.

Ásgrímur flutti vestur til Marklands í Nova Scotia árið 1875. Þaðan lá leiðin í Yellow Medicinebyggð í Minnesota. Guðný flutti vestur með foreldrum sínum, Runólfi Jónssyni og Margréti Bjarnadóttur árið 1877.