
Guðný Ólöf Sigfúsdóttir Mynd VÍÆ IV
Guðný Ólöf Sigfúsdóttir fæddist á Grænavatni í Mývatnssveit 26. apríl, 1859. Dáin í Manitoba 30. apríl, 1944.
Maki: 5. júní, 1882 Gunnlaugur Oddsson fæddist í N.-Þingeyjarsýslu 17. mars, 1850. Dáinn í Selkirk í Manitoba 21. mars, 1931.
Börn: 1. Rakel f. í N. Þingeyjarsýslu 25. desember, 1883, d. í Selkirk 3. mars, 1954 2. María f. í N. Þingeyjarsýslu, 3. maí, 1886, d. 23. maí, 1962 3. Björn Ísfeld f. 15. maí, 1889 4. Snorri Aðalsteinn f. 16. júlí, 1892 5. Gunnlaugur Sigfús f. 1899 6. Sigrún Ólöf f. 12. október, 1905.
Gunnlaugur og Guðný fluttu til Vesturheims árið 1888 með dæturnar Rakel og Maríu. Þau voru fyrsta veturinn í Mikley en fluttu svo þaðan um vorið og settust að í Selkirk. Þar bjuggu þau síðan og vann Gunnlaugur, trésmiður, þar við smíðar.
