ID: 13206
Fæðingarár : 1844
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Guðný Þorleifsdóttir fæddist 22. nóvember, 1844 í N. Múlasýslu.
Maki: Peter O. Lee af norskum uppruna, d. í Birch Bay
Börn: 1. Jón Andrés. Guðný átti dóttur, Svövu Jónsdóttur f. 2. febrúar, 1880 með Jóni Þorlákssyni.
Guðný flutti vestur um haf árið 1883, samferða bróður sínum, Jóni og fjölskyldu hans. Með sama skipi fór fósturfaðir Svövu, Haraldur Pétursson. Fór hún með Svövu suður til N. Dakota, fékk vinnu hjá norskum bónda, Ola Lee sem kvæntur var Þórunni Halldórsdóttur Jónssonar á Litlabakka í Tunguhreppi í N. Múlasýslu. Guðný vann hjá þeim í fimm ár, giftist Peter, frænda Ola. Frændurnir fluttu vestur að Kyrrahafi vorið 1888 sem settust að í Birch Bay. Þar bjó Guðný þar til Peter lést en þá flutti hún í Blaine.
