Guðríður Brynjólfsdóttir fæddist 1882 í Ísafjarðarsýslu (?). Dáin í Bresku Kólumbíu árið 1967 og grafin í Vanvouver.
Maki: Árni Guðmundsson fæddist 10. mars, 1871 í Húnavatnssýslu, d. í Nýja Íslandi 8. september, 1937.
Barnlaus en tóku fjögur börn í fóstur, Thor, Angantýr, Veiga og Guðrún. Nánari upplýsingar vantar um börnin.
Guðríður fór vestur til Winnipeg í Manitoba með fósturforeldrum sínum, Þórði Bjarnasyni og Rebekku Stefánsdóttur árið 1887. Árni var samferða systur sinni, Guðríði og unnusta hennar, Þorsteini Sveinssyni vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888. Áni og Guðrún settust að í Nýja Íslandi, skammt norður af Camp Morton. Að manni sínum látnum flutti Guðríður með fósturdóttur sína Guðrúnu á Rabbit Point norðarlega við Winnipegvatn en þar rak Thor, fóstursonur hennar, fiskverkunarstöð. Seinna fluttu þær til Jackhead Harbour í Manitoba og enduðu síðan í Bresku Kólumbíu.
