Guðríður Guðmundsdóttir

ID: 7283
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Guðríður Guðmundsdóttir Mynd VÍÆ II

Guðríður Guðmundsdóttir  fæddist 1. maí, 1863 í Skagafjarðarsýslu.

Maki: 8. júlí, 1891 Þorlákur Þorfinnsson f. í Skagafjarðarsýslu 27. ágúst, 1866, d. 1. nóvember, 1944.

Börn: 1. Lawrence f. 8. júní, 1892, d. 1908 2. Mathias Adolf f. 10. júlí, 1893, skírður af séra Matthíasi Jochumssyni og bar nafn hans 3. Theodore f. 16. janúar, 1895 4. Snorri Maurice f. 15. apríl, 1901 5. Hjalti Brynjólfur f. 1906.

Þorlákur flutti vestur árið 1882 með foreldrum sínum, Þorfinni Jóhannessyni og Elísabetu Pétursdóttur sem settust að í N. Dakota. Guðríður fór til Nýja Íslands árið 1876 með sínum foreldrum, Guðmundi Skúlasyni og Guðríði Guðmundsdóttur. Þorlákur og Guðríður bjuggu fyrst í Hensel í N. Dakota, seinna í Hallson og um hríð í Cavalier en enduðu í Mountain.