Guðríður Teitsdóttir

ID: 11215
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1935

Guðríður Teitsdóttir fæddist 1. janúar, 1867 í Húnavatnssýslu. Dáin í Vatnabyggð 12. febrúar, 1935.

Maki: 1891 Valdimar Gíslason f. 3. september, 1867 í N. Þingeyjarsýslu, d. í Saskatchewan 26. október, 1948.

Börn: 1. Valdimar Gísli 2. Guðrún Kristín d. 1968 3. Kristján Carl 4. Gunnlaugur f. 14. maí, 1899 5. Emily 6. Elís Gunnar.

Valdimar fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og nam land í Pembinabyggð, suðvestur af Pembina þorpi í N. Dakota. Þau fluttu norður í Vallarbyggð í Saskatchewan um 1903 og námu þar land. Þau færðu sig um set um 1920 og keyptu land norður af Wynyard í Vatnabyggð.