ID: 10467
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Guðrún Árnadóttir fæddist 16. ágúst, 1854 í N.Þingeyjarsýslu.
Maki: Jósef Helgason f. í N. Þingeyjarsýslu árið 1845. Dáinn 1912.
Börn: 1. Árni Soffonías 2. Hólmfríður 3. Margrét 4. Frímann. Jósef átti fyrir tvo syni 1. Helgi Jón f. 1973 2. Jóhann Pétur f. 1874.
Jósef fór vestur með son sinn Helga Jón árið 1878. Þeir voru fyrst í Nýja Íslandi, fluttu þaðan í Argylebyggð árið 1881. Þangað komu Jóhann Pétur og Guðrún árið 1883. Jósef flutti seinna í Hólabyggð. Þaðan fór hann norður á Manitobavatn og bjó eitt ár á Birds Island en settist að á Big Point árið 1895.
