Guðrún Bjarnadóttir

ID: 6819
Fæðingarár : 1895
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Guðrún Bjarnadóttir Mynd VÍÆ III

Guðrún Bjarnadóttir fæddist árið 1896 í Skagafjarðarsýslu.

Maki: 12. desember, 1925  Jón Þorvaldur Eiríksson f. í Glenboro í Manitoba 5. apríl, 1897. Sumarliðason vestra.

Börn: 1. Joyce f. 21. janúar, 1927 2. Kristján f. 28. september, 1931.

Guðrún var dóttir Bjarna Árnasonar og Ástríðar Sigurðardóttur sem vestur fluttu með börn sín þrjú árið 1900. Guðrún vann í verslun í Elfros í Saskatchewan þegar hún kynntist Jóni. Hann var sonur Eiríks Sumarliðasonar og Þorbjargar Jónsdóttur. Hann ólst upp í foreldrahúsum og lauk miðskólaprófi. Gekk í kanadíska herinn í febrúar, 1916 og barðist í Frakklandi í tæp tvö ár, sýktist af eiturgasi í maí 1918 og lá lengi á sjúkrahúsi í Frakklandi. Kom aftur til Manitoba 1919, vann ýmis störf í Saskatchewan áður en hann varð rakari í Vancouver.