ID: 5325
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1947
Guðrún Björnsdóttir fæddist 24. febrúar, 1849 í Húnavatnssýslu. Dáin 5. mars, 1947 í N. Dakota.
Maki: 1879 í Nýja Íslandi Guðmundur Gíslason fæddist í Húnavantssýslu árið 1861. Dáinn í N. Dakota árið 1913
Börn: Þau eignuðust fimm börn, tveir drengir dóu í æsku hin þrjú, Gísli og tvær dætur komust til fullorðinsára, Mrs. J. H. Hallgrimson og Mrs. M. S. Johannesson.
Guðmundur og Guðrún fóru vestur til Kanada með foreldrum sínum frá Borðeyri á gufuskipinu Verona árið 1876. Báðar fjölskyldur settust að í Nýja Íslandi. Þaðan fluttu Guðmundur og Guðrún til N. Dakota árið 1880 og námu land suðvestur af Mountain í Eyfordbyggð.
