Guðrún Davíðsdóttir

ID: 2374
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1940

Guðrún Davíðsdóttir fæddist í Dalasýslu 4. nóvember, 1857. Dáin í Duluth í Minnesota 22. maí, 1940.

Maki: Kristján Jónsson f. 14. júlí, 1858 í Mýrasýslu, d. í Duluth 12. febrúar, 1947. Chris Johnson vestra.

Börn: 1. Pétur f. í Duluth 27. nóvember, 1889, d. ungur 2. Albert f. 1893, d. 25. febrúar, 1910 3. Svava f. 2. maí, 1894 4. Susan d. 21 árs.

Guðrún var dóttir Davíðs Bjarnasonar og Þórdísar Jónsdóttur. Hún og Kristján fluttu vestur til Winnipeg árið 1886 þar sem þau gengu í hjónaband. Fóru þaðan suður til N. Dakota og voru þar til vorsins 1888, þá fluttu þau austur til Duluth, settust þar að og hóf Kristján störf við Forest Hill kirkjugarðinn. Það varð vinnustaður hans um árabil.