ID: 1242
Fæðingarár : 1870
Fæðingarstaður : Rangárvallasýsla
Guðrún Finnsdóttir fæddist í Rangárvallasýslu árið 1870.
Maki: Bjarni Sturlaugsson f. í Dalasýslu 22. nóvember, 1864. Dáinn 22. mars, 1946 í Saskatchewan.
Börn: Eignuðust eitt barn sem lést ársgamalt.
Bjarni fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og var í N. Dakota fyrstu árin. Þau fluttu til Winnipegosis í Manitoba árið 1902 og bjuggu þar í fimm ár. Þaðan lá svo leiðin í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1907 og bjuggu þau nærri Wynyard frá 1908 til 1920. Fluttu þá í Wynyard þorp. Guðrún fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893.