ID: 3052
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : Vestmannaeyjar
Guðrún Guðmundsdóttir fæddist 24. október, 1862 í Vestmannaeyjum.
Maki: 1) Guðmundur Ísleifsson f. 1861, d. á Íslandi eftir 1901 2) Pétur Jónsson f. 1871.
Hún missti mann sinn eftir 1901 og fór til Vesturheims árið 1905, ekkja með dóttur sína, Margréti Ísleif Guðmundsdóttur f. 18. maí, 1894 í Vestmannaeyjum. Samferða þeim vestur var Guðjón, bróðir Guðrúnar. Þau settust að í Selkirk og voru þar um tíma. Guðjón kvæntist árið 1907 og fór vestur til Saskatchewan árið 1911 og keypti land nærri Foam Lake. Þaðan flutti hann á Red Deer Point í Manitoba og eftir þrjú ár þar settist hann að í Winnipegosis. Það er vel hugsanlegt að Guðrún hafi verið hjá honum, allan tímann og komið með honum til Winnipegosis því þar bjó þá Pétur Jónsson.
