Guðrún Guðmundsdóttir

ID: 12739
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1917

Guðrún Björg Guðmundsdóttir Mynd A Century Unfolds

Guðrún Björg Guðmundsdóttir fæddist á Hafrafelli í N. Múlasýslu 7. október, 1849. Dáin í Árborg í Manitoba 31. ágúst, 1917.

Maki: Jón Jónsson f. 15. ágúst, 1836 í S. Múlasýslu, d. 5. október, 1899.

Börn: 1. Sigurjón f. 28. febrúar, 1870, d. í Manitoba 13. maí, 1931 2. Ólöf f. 1871 3. Helgi f. 1875 4. Guðmundur f. 8. maí, 1882, d. 11. mars, 1959.

Guðrún, ekkja, fór vestur árið 1903 með Guðmundi syni sínum. Þau fóru fyrst í Akrabyggð í N. Dakota en þaðan nokkru seinna norður í Nýja Ísland. Þar nam Guðrún land í Árdalsbyggð nærri Árborg.