Guðrún Halldórsdóttir

ID: 4834
Fæðingarár : 1851
Fæðingarstaður : Ísafjarðarsýsla
Dánarár : 1935

Guðrún Halldórsdóttir fæddist í Ísafjarðarsýslu 1. maí, 1851. Dáin 25. apríl, 1935 í Manitoba.

Maki: Magnús Davíðsson f. í Ísafjarðarsýslu árið 1865, d. 1919 í Manitoba

Börn: 1. Jón Hallgrímur  2. Ásta.  Guðrún var ekkja eftir Jón Norman Jónsson úr Skagafirði. Með honum eignaðist hún börnin Olgu og Kristinn.

Magnús og Guðrún fóru vestur árið 1888 og fór til Brandon í Manitoba. Þar kvæntist hann Guðrúnu og bjuggu þau þar einhver ár. Voru víða næstu árin, Tantallon, Selkirk og Poplar Park en fluttu í Pine Valley byggð árið 1900.