ID: 8907
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1839
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1921
Guðrún Halldórsdóttir fæddist að Munkaþverá í Eyjafjarðarsýslu 21. júlí, 1839. Dáin í Roseau sýslu í Minnesota 22. desember, 1921.
Ógift.
Börn: 1. Valdimar Jónsson f. 12. febrúar, 1870.
Guðrún flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1878 með Valdimar. Þau fóru suður til N. Dakota og bjuggu þar til aldamóta. Árið 1900 er Guðrún skráð gift kona að heimili Valdimars og fjölskyldu hans í Pholitz hreppi í Roseau sýslu í Minnesota og þar bar hún beinin.
