Guðrún Helgadóttir

ID: 8418
Fæðingarár : 1865
Dánarár : 1922

Guðrún Helgadóttir fæddist á Kristnesi í Eyjafjarðarsýslu árið 1865. Dáin 27. janúar, 1922.

Maki: 1887 Hjálmar Árnason, f. í Goðdalasókn í Skagafjarðarsýslu 10. apríl,  1860, d. 20. júní, 1923 í Nýja Íslandi

Börn: 1. Ida f. 27. október, 1899 2. Fanney f. Upplýsingar vantar.

Fóru vestur árið 1888 og voru fyrst í Nýja Íslandi. Fluttu þaðan til Selkirk og vann Hjálmar þar við verslun í félagi við Jón Sigurðsson, svila sinn.

Þaðan fluttu þau í Hólabyggð árið 1892 og bjuggu á því um hríð. Keyptu betra land nærri Assiniboine ánni þar sem þau bjuggu til ársins 1912.

Seldi það land og keypti annað austur af Glenboro þar sem þau bjuggu í sex ár. Seldu lönd sín í Hólabyggð og fluttu í Árdals- og Framnesbyggð.