Guðrún Ísleifsdóttir

ID: 8229
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1950

Guðrún Ísleifsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 22. júlí, 1874. Dáin 9. febrúar, 1950 í Argylebyggð í Manitoba.

Maki: 1) Jón Jósefsson f. 10. september, 1861, d. 4. nóvember, 1898 2) Sigvaldi Brynjólfsson f. 18. ágúst,1876, d. 30. janúar, 1949.

Börn: Með Jóni 1. Friðrik f. 1896 2. Ólína Aðalheiður  f. 3. maí, 1898.

Guðrún flutti vestur til Winnipeg með börn sín tvö árið 1902. Móðir hennar Rósa Ólafsdóttir og bræður tveir fluttu vestur þangað ári síðar. Tvær systur hennar bjuggu í Winnipeg, Laufey og Margrét sem vestur þangað fóru árið 1900. Guðrún og Sigvaldi bjuggu í Argylebyggð í Manitoba.