ID: 9464
Fæðingarár : 1850
Dánarár : 1918
Guðrún Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1850. Dáin í Saskatchewan 31. október, 1918.
Maki: 1874 Brynjólfur Jónsson f. 16. apríl, 1850 í S. Þingeyjarsýslu, d. 19. maí, 1941.
Börn: 1. Jón 2. Steingrímur 3. Kristinn 4. Elín 5. Karólína 6. Haraldur. Þrjú börn þeirra dóu á barnsaldri.
Guðrún og Brynjólfur voru trúlofuð þegar þau fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1873. Þar gengu þau í hjónaband ári síðar og settust að í Muskoka. Árið 1884 fluttu þau vestur til N. Dakota og bjuggu þar til ársins 1905. Þá fluttu þau á land í Vatnabyggð í Saskatchewan, sem var skammt frá Wynyard.
