Guðrún Jónsdóttir

ID: 10053
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1936

Guðrún Jónsdóttir Mynd VÍÆ III

Guðrún Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 14. júlí, 1857. Dáin 6. mars, 1936 í Gimli í Manitoba.

Maki: Kristinn Stefánsson f. í Skagafjarðarsýslu 9. júlí, 1856, d. í Winnipeg 26. september, 1916.

Barnlaus.

Guðrún flutti vestur til Manitoba árið 1876 með foreldrum sínum, Jóni Árnasyni og Rebekku Guðmundsdóttur. Þeir settust að í Nýja Íslandi en Guðrún varð eftir í vist hjá enskumælandi fólki í Winnipeg. Kristinn flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1873. Hann settist að í Muskoka og bjó þar til ársins 1881 og flutti til Winnipeg þar sem hann bjó eftir það.