Guðrún Jónsdóttir

ID: 11549
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1950

Guðrún Jónsdóttir og sonur. Mynd Well Connected

Guðrún Salína Jónsdóttir fæddist árið 1865 í N. Múlasýslu. Dáin 20. janúar, 1950 í Minnesota.

Maki: 1897 Sveinn Magnússon f. 23. desember, 1863 í N. Múlasýslu. Dáinn í Minnesota 27. júlí, 1959. Swain Magnus vestra.

Börn: 1. Eugene Rafn f. 27. febrúar, 1899 2. Bjarni Stefán f. 22. september, 1900.

Sveinn fór vestur til Minnesota árið 1879. Guðrún fór vestur með foreldrum sínum, Jóni Rafnssyni og Guðrúnu Guðmundsdóttur árið 1889.  Sveinn lærði ljósmyndun og rak ljósmyndastofu í Minneota. Þau bjuggu síðustu árin í Minneapolis.