Guðrún Jónsdóttir fæddist á Grund í Fljótsbyggð 14. júlí 1878. Dáin 2. apríl, 1960.
Maki: Samson Jónasson f. Skagafjarðarsýslu 17. júlí 1876. Dáinn 19. maí, 1955.
Börn: 1. Margrét Elfreda f. 10. febrúar, 1902 2. Jón Victor f. 26. maí, 1909 3. Björg Snjólaug f. 18. apríl, 1911 4. Þorbjörg (Tobba) f. 31. júlí, 1913 5. Guðrún f. 19. september, 1921.
Guðrún var dóttir Jóns Björnssonar og Margrétar Eyjólfsdóttur landnema á Grund í Fljótsbyggð. Samson flutti með foreldrum sínum vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887. Hann var með bróður sínum í Winnipegosis eitt ár en flutti árið 1903 til Winnipeg. Hann var fyrst lögregluþjónn en lærði svo prentiðn vann við Almanakið til að byrja með en var síðan ráðinn til Viking Press Ltd. um 1930. Keypti prentsmiðjuna árið 1949 og hét hún nú Viking Printers og prentuðu þeir Heimskringlu um árabil.
